Birna Dröfn Birgisdóttir
Birna Dröfn Birgisdóttir
Birna hefur mikla ástríðu fyrir því að aðstoða fólk við að nýta og efla sköpunargleði sína til þess að ná meiri árangri í lífi og starfi.
Sem betur fer getum við þjálfað okkur í ýmsu og þegar Birna var ung þá þorði hún varla að spurja spurninga í tímum en hún hefur þjálfað sig í því að koma fram og hafa núna mörg hundruð einstaklinga sótt fyrirlestra, vinnustofur og námskeið hjá Birnu um sköpunargleði.
Sköpunargleðina getum við þjálfað líkt og vöðva og Birna elskar að deila því með fólki hvernig við getum átt auðveldara með að leysa hin ýmsu vandamál og gert lífið skemmtilegra með sköpunargleðiþjálfun.
Hún veit fátt betra en að vera úti í náttúrunni og því þykir henni einstaklega skemmtilegt að rannsóknir benda til þess að útivera getur aukið sköpunargleðina okkar.
Birna Dröfn Birgisdóttir
Birna hefur mjög gaman að því að læra og er doktorsnemi í Háskólanum í Reykjavík þar sem hún er að rannsaka sköpunargleði og hvernig leiðtogastíllinn þjónandi forysta hefur áhrif á sköpunargleði starfsmanna.
Birna hefur safnað að sér ýmsum tólum og upplýsingum sem tengjast sköpunargleði ásamt því að hafa lært markþjálfun, mannauðsstjórnun, NLP (neuro linguistic programming), viðskiptafræði og er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og þessi þekking er mikilvægur grunnur sem hún byggir á til þess að aðstoða fólk og fyrirtæki við að nýta og efla sköpunargleði sína og nýsköpun.
Á LinkedIn er Birna oft að skrifa pósta um sköpunargleði og hér er hægt að fylgjast með þeim og fyrir áhugasama þá er Google Scholar síðan hennar hér.
Hannes Agnarsson Johnson
Hannes hefur verið að þróa og markaðssetja hugbúnað í meira en 15 ár. Hann hefur unnið hjá nokkrum af mest skapandi nýsköpunarfyrirtækjum Íslands, eins og Tempo, QuizUp, CCP og Smitten.
Hannes er tölvunarfræðingur og hefur sérhæft sig í "growth" (growth hacking) hugmyndafræðinni þar sem er hugað að bæði snjallri vöruþróun og skapandi markaðssetningu byggt á gögnum og tilraunum til að hjálpa fyrirtækjum að vaxa.
Hannesi finnst hugmyndasköpun sérstaklega skemmtileg – fá fullt af hugmyndum, sem verða svo að mörgum tilraunum til að hjálpa fyrirtækjum vaxa.
Hjá Sköpunargleði ehf. sér Hannes um tæknimál, markaðssetningu og þróun á hugbúnaðarlausnum sem hjálpa fólki að fá fleiri og betri hugmyndir.
Hér má finna Hannes á LinkedIn.